Ég og Kasia vorum að labba heim frá lestarstöðinni uppúr miðnætti á laugardaginn fyrir viku. Þá sé ég úr liggjandi á götunni. Lítið gyllt úr með svartri leðuról. Við tökum úrið með heim.
Svo sest ég niður við tölvuna nokkrum dögum síðar og ætla að búa til eitthvað sem ég get límt upp á ljósastaur til að auglýsa fundið úr. Ákveð að athuga samt á Tapað/Fundið á Craigslist hvort einhver hafi auglýst eftir úrinu. Ótrúlegt nokk þá sé ég auglýsingu frá manni sem spyr hvort einhver hafi fundið úr sem passar nákvæmlega við lýsinguna á úrinu sem ég fann, segir að konan sín hafi tapað úrinu og sé miður sín. Hún hafi fengið úrið að gjöf þegar hún var lítil stelpa á ferðalagi í Ástralíu og það hafi mikið tilfinningalegt gildi.
Ég hef samband við manninn og hálftíma síðar kemur konan hans ótrúlega glöð að sjá úrið og þakkar mér hjartanlega fyrir. Og ég náttúrulega sjálfur í skýjunum yfir góðverkinu….

















