Fórum til New York um þar seinustu helgi. Tókum China Town rútuna á laugardagsmorgninum og vorum komin til New York rétt um tvö leitið. Gistum á Exchange Hotel sem er í næstu götu við hið fræga Wall Street. Hægt að fá ágætis verð á hóteli á þessu svæði, því allir túristarnir vilja vera á “upp-town” Manhattan enda er lítið um að vera í fjármálahverfinu um helgar þegar allt er lokað.
Tókum leigubíl frá China Town til hótelsins og leigubílstjórinn lét okkur af rétt hjá hótelinu. Þurftum að labba smá og mér fannst það skrítið en ég kannaðist eitthvað við mig þarna. Aðeins lengra löbbuðum við svo framhjá veitingastaðnum sem ég og Eiki borðuðum með Dr. Gross þegar við vorum í NY í febrúar!!
Tékkuðum okkur inn á hótelið og fórum svo út til að hitta stelpu sem nú býr í New York en leigði með Kösiu þegar hún var í Boston university. Mjög hress og skemmtileg stelpa sem er alveg eldklár og vinnur hjá Microsoft. Um kvöldið fórum við svo út að borða í Meat packing district á stað sem heitir Spice Market og svipar mikið til Trader Vic´s í London sem er staður sem ég held mikið upp á. Spice market var líka mjög góður þótt að fiskurinn sem ég panntaði mér hafi verið full vel kryddaður þar sem að munnurinn á mér gjörsamlega logaði! En engu að síður mjög skemmtilegur staður með framandi andrúmslofti. Svo fórum við í afmælisveislu eftir matinn.
Deginum eftir eyddum við svo mestan parts í Central Park í frábæru veðri. Fórum upp á þakgarðinn á Metropolitan Art Museum þar sem listamaðurinn Jeff Koons var með sýningu.












