Ísland: Lögreglan skýtur ísbjörn. Hann sýndi ógnandi hegðun.
Hér: Lögreglan skýtur mann. Hann sýndi ógnandi hegðun.
Um daginn var maður skotinn á bílastæðinu fyrir utan þar sem ég er að vinna. Hann hlaut sömu örlög og ísbjörninn. Þetta gerðist að nóttu til þannig að ég var ekki í vinnunni. Þetta er raunveruleikinn hérna.
Stundum finnst manni eins og Ísland sé algjör ‘Utopia’ miðað við Bandaríkin.
Hér eru gríðarleg félagsleg vandamál, eiturlyfjafíklar, skotárásir, fátækt og heimilislausum fjölgar stöðugt.
Það hafa aldrei jafnmargir verið án sjúkratrygginga og eru nú, næstum 50 milljónir.
Aldrei jafn margir verið í fangelsum, 2 milljónir manna.
Ég gæti haldið áfram en þetta blogg á nú að vera meira um svona það sem er gaman og skemmtilegt.
-Helgi
