Archive for the ‘Daglegt líf’ Category

h1

Úri skilað til rétts eiganda

september 14, 2008

Ég og Kasia vorum að labba heim frá lestarstöðinni uppúr miðnætti á laugardaginn fyrir viku.  Þá sé ég úr liggjandi á götunni.  Lítið gyllt úr með svartri leðuról.  Við tökum úrið með heim.

Svo sest ég niður við tölvuna nokkrum dögum síðar og ætla að búa til eitthvað sem ég get límt upp á ljósastaur til að auglýsa fundið úr.  Ákveð að athuga samt á Tapað/Fundið á Craigslist hvort einhver hafi auglýst eftir úrinu.  Ótrúlegt nokk þá sé ég auglýsingu frá manni sem spyr hvort einhver hafi fundið úr sem passar nákvæmlega við lýsinguna á úrinu sem ég fann, segir að konan sín hafi tapað úrinu og sé miður sín.  Hún hafi fengið úrið að gjöf þegar hún var lítil stelpa á ferðalagi í Ástralíu og það hafi mikið tilfinningalegt gildi.

Ég hef samband við manninn og hálftíma síðar kemur konan hans ótrúlega glöð að sjá úrið og þakkar mér hjartanlega fyrir.  Og ég náttúrulega sjálfur í skýjunum yfir góðverkinu….

h1

Sverrir Stormsker í Símanum

júlí 15, 2008

Síminn minn er þeim eiginleikum gæddur að ég get notað hann sem mp3 spilara. Það hef ég hinsvegar ekki gert hingað til vegna þess að ég hef ekki átt almennileg heyrnatól til að tengja við hann. Nýverið bætti ég úr því og skellti mér á ein slík ($7 á amazon samanborið við $200 ipodinn sem ég var að pæla í, nirfill já)

Þetta voru góð kaup og nú hlusta ég á “símann” á leiðinni í og úr vinnu. Stundum hlusta ég á músik, en mest hlusta ég Þó á podcöst (eldri kynslóðir les “útvarpsþættir af netinu). Þátt Sverris Stormskers “Miðjuna” náði ég mér í á stormsker.net og er búinn að vera að hlusta á undanfarna tvo daga. Þetta er viðtalsþáttur þar sem Sverrir fær til sín ágæta gesti sem gaman er að hlusta á, og Sverrir er auðvitað hnittinn náungi með húmor sem að ég fíla. Í þættinum sem ég var að hlusta á í dag fékk hann til sín Hannes Hólmstein sem hann kynnti sem mann ekki kærulausan (með vísan í málaferlin sem aumingjas kallinn hefur staðið í). Sverrir er jú samt helvíti óslípaður á köflum, svaraði tildæmis símanum í miðri útsendingu til að tala við “viðhaldið í Tælandi” eins og hann orðaði það. En það kemur samt helvíti margt gott útúr kallinum enda orðheppinn með ólíkindum.

Annars er maður bara að undirbúa sig fyrir Ísland eftir fjóra daga. Hef ekki upplifað íslenskt sumar í tvö ár. En ef ég man rétt verður algjör óþarfi að pakka stuttbuxum, og miðað við hvað maður er búinn að vera að heyra í fréttunum verðum við heppinn ef hitinn dettur yfir 15 gráðurnar, umgangur ísbjarna verður í lágmarki, ef aðeins um minniháttar jarðskjálfta verður að ræða og hvert einasta veitingahús sem við förum á verður ekki yfirfullt yfirmönnum vogunarsjóða.

h1

Svalirnar

júní 28, 2008

Erum búin að fjárfesta í garðhúsgögnum. Meiriháttar þegar veðrið er gott.

Smella til að sjá stækkaðar myndir…..